20. desember 2018
Lota lætur gott af sér leiða með því að styrkja Bumbuloní með veglegum styrk.
Erlen Björk Helgadóttir mannauðsstjóri afhenti fyrir hönd starfsmanna Lotu styrkinn til þeirra Ásdísar Örnu Gottskálksdóttur og Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, stjórnarmönnum Bumbuloní góðgerðafélagsins.
Bestu þakkir fyrir þeirra framlag sem mun fara óskert til fjölskyldna langveikra barna þar sem þörfin er mikil.