Tækifæriskort Bumbuloni prýðir fallegu lestina sem Björgvin Arnar teiknaði þegar hann var 5 ára. Björgvin Arnar var mjög hrifinn af lestum og teiknaði þær af mikilli list.
Kortin eru notuð við mörg tækifæri sem dæmi má nefna afmæliskort fyrir unga jafnt sem aldna,útskriftarkort, skírnarkort, fyrir sængurgjafir og einnig til að gleðja án tilefnis. Þegar kortin eru notuð fyrir barnaafmæli er sniðugt að leyfa börnunum að lita lestarvagnana með fallegum litum.
Enginn texti er innan í kortinu og með kortinu fylgir umslag.
Það er gott að gefa og ennþá betra að nota kort sem gefur til góðs í leiðinni, öll fjárhæðin fyrir kortið fer óskert til styrktar fjölskyldum langveikra barna.