11. janúar 2020
Það var við hátíðleg stund í Lindakirkju þann 8. desember 2019 þegar Bumbuloní styrkurinn var afhentur í fimmta sinn. Að þessu sinni hlutu 12 fjölskyldur langveikra barna styrk og hafa nú samtals 38 fjölskyldur fengið Bumbuloní styrk frá 2015.
Hver fjölskylda fékk 233.000 kr., Bumbuloní jólakort og merkimiða. Þau börn sem voru yngst fengu jólagjöf frá fasteignasölunni Húsaskjóli.
Með miklu þakklæti þakkar Bumbuloní öllum þeim sem hafa keypt Bumbuloní vörurnar, styrkt hlaupara Bumbuloní í Reykjavíkurmaraþoninu eða styrkt Bumbuloní beint fyrir að allan stuðninginn. Þetta væri ekki hægt án ykkar og er mikilvægt að standa saman og styðja við þær fjölskyldur sem eru að ganga í gegnum ólýsanlega erfiðleika með veik börn sín.
Kærleikskveðja
Ásdís Arna Gottskálksdóttir
Stofnandi Bumbuloní góðgerðafélagsins.