02. júní 2020
Bumbuloní afhenti níu styrki til sex fjölskyldna langveikra barna núna í maí 2020. Ástæðan fyrir þessari úthlutun er ástandið í þjóðfélaginu vegna covid-19. Fjölmargar fjölskyldur eiga um sárt að binda og svona ástand bætir ekki úr. Það er dásamlegt að geta stutt við fjölskyldur langveikra barna í minningu Björgvins Arnars.
Bestu þakkir til allra sem tóku þátt í þessu með okkur.
Áfram Bumbuloní <3
Ásdís