11. júlí 2021
Hjónin Baldur Örn Baldursson og María Magnúsdóttir afhentu Bumbuloní veglegan styrk í minningu sonar síns, Bjarka Þórs, sem þau misstu fyrir 25 árum. Ættingjar og vinir tóku höndum saman til að heiðra minningu Bjarka Þórs og var ákveðið að láta fjárhæðina, kr. 444.000, renna til Bumbuloní sem styrkir fjölskyldur langveikra barna ár hvert.
Bumbuloní þakkar fyrir stuðninginn og mun þessi styrkur gleðja og styðja fjölskyldur sem eiga um sárt að binda fyrir næstu jól <3
Bestu þakkir Baldur og María.
Áfram Bumbuloní <3