22. ágúst 2022
Bumbuloní þakkar fyrir frábærar undirtektir í söfnuninni í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina. Að þessu sinni söfnuðust rúmar 1.2 milljónir. Það munar mikið um þessa söfnun í okkar starfi og er gleðilegt að hægt sé að halda hlaupið aftur eftir tveggja ára hlé.
Við þökkum hlaupurum fyrir að hlaupa fyrir Bumbuloní fyrir ómetanlegan dugnað í hlaupi og söfnun og síðast en ekki síst þökkum við öllum þeim aðilum sem styrktu Bumbuloní.
Kær kveðja til ykkar allra.
Áfram Bumbuloní <3