13. nóvember 2022
Frábær árangur hjá Bumbuloní þar sem við höfum náð að styrkja fjölskyldur langveikra barna um rúmar 20 milljónum frá árinu 2015. Það er ánægjulegt að hafa getað létt undir hjá fjölskyldum langveikra barna og um leið haldið minningu Björgvins Arnars á lofti <3
Þegar ég fór af stað með góðgerðafélagið í minningu Björgvins þá grunaði mig ekki allan þann meðbyr sem ég fékk og þakka ég öllum þeim sem hafa lagt mér lið, stutt við félagið á einn eða annan máta.
Kærleikskveðjur,
Ásdís stofnandi Bumbuloní
Áfram Bumbuloní <3