06. október 2023
Bumbuloní barst veglegur styrkur frá Veitingafélaginu í tilefni góðgerðadaga sem voru haldnir helgina 1. og 2. júlí síðastliðinn. Veitingafélagið rekur Bankann Bistró, Hlöllabáta og Mandí.
Bumbuloní þakkar fyrir stuðninginn sem mun fara beint í styrki til fjölskyldna langveikra barna.
Þökkum góðvild og hlýhug frá Veitingafélaginu til Bumbuloní til minningar Björgvins Arnars.
Áfram Bumbuloní