04. ágúst 2017
Lindex hefur tekið tækifæriskort Bumbuloní í sölu í verslunum sínum. Móttökur hjá viðskiptavinum Lindex hafa verið vonum framar og er mikil ánægja að fá kort í Lindex og sérstaklega þar sem allur ágóði fer til styrktar fjölskyldum langveikra barna.
Lindex er sterkur aðili í góðgerðastarfi á Íslandi, bæði styður við og styrkir mikilvæg málefni með starfsemi sinni.
Aðstandendur Bumbuloní góðgerðafélagsins eru þakklátir fyrir gott samstarf við Lindex og vonandi mun salan á tækifæriskortunum halda áfram á sömu braut.
Notum kort frá Bumbuloní við öll tækifæri - Til góðs!