15. ágúst 2017
Bumbuloni hjólreiðalið keppti í Glacier 360 keppninni við Langjökul seinustu helgi 11-13 ágúst 2017. Þeir félagar Kristján Árni Jakobsson og Matthías Guðmundsson skipuðu Bumbuloní liðið. Liðið náði 1. sæti í 40+ og 7. sæti heilt yfir keppnina.
Þvílíkur árangur og allt varð það til góðs málefnis.
Alvogen og Kristján Árni styrktu Bumbuloni um sitt hvorn kr. 100.000 og mun þessi upphæð renna beint til fjölskyldna langveikra barna fyrir næstu jól.
Bestu þakkir fyrir ykkar framlag strákar og gott verk að hjóla fyrir Bumbuloní.